miðvikudagur, janúar 10, 2007
Nytt ar

Halló music lovers.
Pétur Örn hér.
Gleðilegt ár og takk fyrir öll hin.
Nú á komandi ári ætlum við í bandinu að reyna að spila meira en við gerðum á síðasta ári en með einhverjum breyttum áherslum.
Það eru ýmis verkefni í gangi og ber þar hæst tónleika okkar og Sinfóníunnar í sumar en svo eru aðrar pælingar í gangi sem ég mun segja ykkur frá um leið og það kemst á hreint.
Það eina sem ég get sagt er að það er stórt plan í mars á dagskrá hjá okkur.
Vil ekki segja meira til að lofa ekki í ermarnar og skálmarnar á okkur.
En rokk verður það heillin.
Endilega látið í ykkur heyrast með glamri á lyklaborð í kommentin hér.
Kv.
Dúndurfréttir